Staðan 26. júní: 67 lið skráð
júní 13, 2022Leikjadagskrárnar eru klárar!
júní 29, 2022Nokkur hagnýt atriði varðansi skráningu liða á Pollamót Samskipa 2022.
- Síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 26. júní.
Að kvöldi þess dags verður lokað fyrir skráningu. Við skráningu er hægt að velja um að greiða strax með greiðslukorti eða að millifæra á reikning knattspyrnudeildar Þórs – 0566-26-1516, kt. 6709912109. - Skráning liða fer fram í gegnum skráningarform hér á pollamot.is,
sjá hnappinn „skrá lið“ efst til hægri í valmyndinni. - Þegar lið er skráð til leiks er lágmark að skrá sjö leikmenn og þarf að setja inn nöfn og kennitölur allra leikmanna.
Til útskýringar þá er ástæðan fyrir því að við höfum þennan hátt á við skráningu sú að í gegnum árin hafa stundum komið upp kærumál. Með nákvæmri skráningu leikmanna er mun auðveldara að leysa úr slíkum málum. - Skráning viðbótarleikmanna fer fram í gegnum hnappinn „skrá nýjan leikmann“ í valmyndinni hér á pollamot.is.
Eftir að lið hefur verið skráð til leiks með a.m.k. sjö leikmenn er hægt að bæta við leikmönnum að vild inn í liðið (eða taka út) alveg fram að móti og raunar alveg fram að því að viðkomandi leikmaður mætir í sinn fyrsta leik. En athugið að gjald fyrir hvern leikmann er 7.000 krónur, alveg sama hvenær viðkomkandi mætir til leiks eða hve marga leiki viðkomandi leikmaður getur spilað. - Mörg lið hafa nú þegar gengið frá greiðslu, annaðhvort með korti eða millifærstlu, en við viljum hvetja fulltrúa liða til að ganga frá greiðslu þátttökugjaldsins tímanlega fyrir mót þannig að flýta fyrir og auðvelda afhendingu mótsgagna og forðast biðraðir.
- Leikmannamarkaður – ef þig vantar að komast í lið eða ef liðið þitt vantar leikmann/leikmenn.
Hægt er að nota hnappinn „skrá nýjan leikmann“ til að koma skilaboðum á framfæri varðandi leikmannamarkaðinn, eða senda póst í pollamot.is eða haralduringolfsson@gmail.com. Nánari upplýsingar á síðu fyrir leikmannamarkaðinn.