Skráning og miðasala hefst í byrjun maí
mars 29, 2023Skráning á Pollamótið
júní 17, 2023Nú styttist í að skráning á Pollamót Samskipa 2023 hefjist sem og miðasala á lokaballið á laugardagskvöldinu.
Fyrst ætlum við að kynna nokkrar reglubreytingar fyrir fótboltamótið sjálft. Helstu breytingar eru að grein um gjaldgengi leikmanna er breytt, annars vegar í samræmi við breytingar á deildaskiptingu Íslandsmóts karla og hins vegar er gerð sú breyting að þær sem spila í Lengjudeild kvenna eru ekki lengur gjaldgengar á Pollamótinu. Þetta er gert með styrkleika deildarinnar í huga, sem er klárlega meiri í dag en verið hefur í gegnum tíðina.
Karlar: Óheimilt er að nota leikmenn sem hafa spilað eða verið sem leikmenn á leikskýrslu í Bestu deildinni, Lengjudeildinni, 2. deild, 3. deild eða 4. deild.
Konur: Óheimilt er að nota leikmenn sem hafa spilað eða verið sem leikmenn á leikskýrslu í Bestu deildinni eða Lengjudeildinni.
Einnig er að gefnu tilefni skerpt á reglu um refsingu ef lið mætir ekki til leiks í riðlakeppni mótsins, auk nokkurra smávægilegra orðalagsbreytinga.