Leikmannamarkaður
júní 30, 2020Leikjadagskrá og skipulag
júlí 2, 2020Mikilvæg atriði til að hafa í huga sem þátttakandi eða gestur á Pollamóti Samskipa 2020.
Í hönd fer Pollamót á fordæmalausum tímum. Barátta Íslendinga við kórónuveirufaraldurinn hefur gengið mjög vel að flestu leyti, sem hefur orðið til þess að of mörg okkar hafa slakað á klónni að undanförnu.
Veiran hefur nú þegar minnt okkur á hve mikilvægt það er að halda áfram vöku okkar, viðhalda öflugum sóttvörnum og fara eftir reglum. Í þessu sambandi er ábyrgð einstaklingsins gríðarlega mikilvæg. Hvert okkar og eitt verður að taka ábyrgð á eigin hegðun og gera allt sem við getum til að lágmarka áhættuna á að veiran nái aftur að breiðast út í samfélaginu.
Sýnum ábyrgð, gerum okkar
Við viljum því minna á nokkur grundvallaratriði sem við þekkjum öll og hafa gagnast vel í baráttunni, en mögulega eitthvað slaknað á hjá mörgum okkar upp á síðkastið.
- Þvoum okkur reglulega og vel um hendurnar með sápu.
- Sprittum hendur þegar það á við, sérstaklega ef sápa og rennandi vatn eru ekki tiltæk.
- Engin knús, engin handabönd.
- Forðumst mikla mannþröng eins og kostur er.
- Engin handabönd við keppinautana eða dómara fyrir eða eftir leiki.
- Hóstum og hnerrum í olnbogabótina (ef við þurfum). Gætum þess að hósta eða hnerra ekki á annað fólk.
- Ekki hrækja, sérstaklega ekki í markmannshanska.
- Ekki taka þátt í mótinu eða koma á svæðið ef þú ert veik(ur) eða með einkenni sem gætu mögulega bent til covid-19 smits (flensulík einkenni).
- Forðumst að bera hendur að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.
- Ert þú í áhættuhópi varðandi covid-19 og/eða með aðra undirliggjandi sjúkdóma? Þá er ráðlagt að halda sig fjarri mannamótum og fjöldasamkomum.
- Forðumst að umgangast fólk sem er með einkenni sem minna á flensu.
- Hlöðum niður smitrakningarappinu og höfum það í gangi.
Fataskipti og sturta á gististað ef mögulegt er
Auk þess viljum við benda þeim þátttakendum á sem eiga þess kost að lágmarka notkun búningsklefa á svæðinu. Ef þú getur klætt þig í keppnisfötin á þínum gististað og farið síðan í sturtu þar að leik/degi loknum er það mikilvægt innlegg í sóttvarnir mótsins. Því færri sem nota búningsklefana á Þórssvæðinu, því betra.
Svæðaskipting leikjadagskrár
Mótið sjálft verður sett upp þannig að svæðinu verður skipt í tvennt og keppni í einstökum deildum afmarkast við annað svæðið. Þetta verður nánar útskýrt þegar leikjadagskrá og fyrirkomulag mótsins verða kynnt.
Lágmarkið komur upp í mótsstjórnarherbergi eins og kostur er. Ef þörf er á upplýsingum og/eða öðrum samskiptum við mótsstjórn, sendið þá einn fulltrúa liðs eða hafið samband með rafrænum hætti ef það nægir.
Greiðið fyrirfram fyrir allt liðið
Til að forðast örtröð og biðraðir hjá gjaldkera er alveg kjörið að fulltrúi hvers liðs safni til sín greiðslum frá öllum liðsmönnum og millifæri í einu lagi. Við millifærslu er mikilvægt að setja nafn liðs í skýringu og senda staðfestingu á pollamot@thorsport.is. Með þessum hætti getur fulltrúi liðs mætt til gjaldkera og sótt armbönd fyrir allt liðið.
Reikn.: 0565-26-147500
Kt.: 6709912109
Kvittun: pollamot@thorsport.is
Við erum öll almannavarnir!
Upplýsingasíða um covid-19: https://www.covid.is/