Síðasti skráningardagur: sunnudagur 28. júní
júní 22, 2020Engin tjaldstæði við Þórssvæðið
júní 29, 2020Pollamótsnefndin hvetur þátttökuliðin til að safna saman gjaldinu frá öllum liðsmönnunm tímanlega fyrir mót og millifæra í einu lagi inn á reikning Pollamótsins. Þannig má forðast bið við posana kvöldið fyrir mót eða að morgni fyrri mótsdags. Einstaklingar geta einnig greitt sitt gjald beint inn á reikning og komið og fengið sitt armband. Því fleiri sem greiða með millifærslu fyrir mót, því minni örtröð við posana.
Afhending armbanda fer fram á fimmtudagskvöld og áfram á meðan mótið stendur, mögulega einnig á miðvikudagskvöld og allan fimmtudaginn.
Áríðandi: Þegar greitt er fyrir heilt lið í einu er mikilvægt að senda kvittun í tölvupósti á pollamot@thorsport.is og setja nafn liðs í skýringu eða í versta falli að prenta út kvittun og mæta með á staðinn. Þannig getur fulltrúi hvers liðs komið og fengið armbönd fyrir allt liðið.
Greiðslu staðfestingargjalds og mótsgjaldið sjálft má millifæra á:
0565-26-147500
kt. 6709912109
Kvittun á: pollamot@thorsport.is.
Munið að setja nafn liðs í skýringu.
Minni umferð, minni bið, minna vesen.