Viltu losna við biðröðina?
júní 22, 2020Mótsstjórn vill vekja athygli á að síðasti skráningardagur fyrir Pollamót Samskipa 2020 er sunnudagurinn 28. júní. Mikilvægt er að ganga frá staðfestingargjaldi þannig að knattspyrnustjóri mótsins hafi traustar upplýsingar í höndunum við skipulagningu keppni í einstaka deildum. Athugið að við skráningu fær tengiliður sendan tölvupóst með greiðsluupplýsingum, en mögulega getur sá póstur lent annars staðar en í aðalinnhólfi (ruslpóstur).
Dráttur í riðla í einstökum deildum fer nú fram fyrr en venjulega og um leið er stefnt að því að leikjadagskráin verði klár 2-3 dögum áður en mótið hefst.