Uppfærðar reglur fyrir Pollamótið
apríl 24, 2023Staðan: 48 lið skráð (28.06.)
júní 18, 2023Skráning liða á Pollamótið er í fullum gangi, en samkvæmt reynslu fyrri ára munu flest liðin skrá sig næstu tíu dagana eða svo. Þegar þetta er ritað hafa 22 lið skráð sig til leiks.
Myndin með fréttinni sýnir skráningarleiðina. Efst í hægra horninu hér á pollamot.is er hnappurinn „Skrá lið„. Ekki er nauðsynlegt að senda inn nafnalista strax við skráningu. Nóg er að skrá liðið og áætla fjölda leikmanna ef ekki er komið á hreint hve margir liðsmenn mæta. Nokkrum dögum eftir skráningu fá tengiliðir sendan tölvupóst með tengli til að skrá inn nöfn og fæðingarár leikmanna.
Athugið: Síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 2. júlí
Eftir að lið hefur verið skráð og búið að senda inn leikmannalista er síðan hægt að bæta við nýjum leikmanni í liðið, sjá „Skrá nýjan leikmann“ hér í valmyndinni. Lið geta bætt við nýjum leikmanni alveg fram að síðasta leik, en við vekjum athygli á að það þarf alltaf að greiða fullt gjald (7.000 krónur) fyrir nýja leikmenn, alveg sama hvenær þeir koma inn í liðið. Leikmaður er löglegur ef aldurinn stenst viðmið fyrir viðkomandi flokk og búið er að greiða þátttökugjaldið.
Að gefnu tilefni er áréttað að mótsstjórnin veitir engar undanþágur frá reglunum varðandi aldur eða skráningu í lið. Skráning liða og leikmanna í réttan aldursflokk er á ábyrgð tengiliðs hjá hverju liði. Lið sem nota of unga leikmenn í leikjum geta átt á hættu að tapa leik eða leikjum vegna þess. Einnig er minnt á að leikmaður er aðeins löglegur með einu liði á mótinu og gildir það jafnt þó svo sami félagsskapur sendi inn lið undir sama nafni í nokkrum deildum.
Til upprifjunar eru hér ákvæðin úr reglunum um gjaldgengi leikmanna:
- Polladeildin: Karlar 28+. Þeir sem verða 28 ára á árinu teljast gjaldgengir.
- Jarladeildin: Karlar 35+. Þeir sem verða 35 ára á árinu teljast gjaldgengir
- Lávarðadeildin: Karlar 42+. Þeir sem verða 42ja ára á árinu teljast gjaldgengir
- Öðlingadeildin: Karlar 50+. Þeir sem verða 50 ára á árinu teljast gjaldgengir.
- Skvísudeildin: Konur 20+. Þær sem verða tvítugar á árinu teljast gjaldgengar.
- Dömudeildin: Konur 28+. Þær sem verða 28 ára á árinu teljast gjaldgengar.
- Ljónynjudeildin: Konur 35+. Þær sem verða 35 ára á árinu teljast gjaldgengar.
- Í Karladeildum er ekki heimilt að nota leikmenn sem spilað hafa, eða verið sem leikmenn á leikskýrslu, í Bestu deildinni, Lengjudeild, 2. deild, 3. deild eða 4. deild sama ár.
- Í kvennadeildum er ekki heimilt að nota leikmenn sem spilað hafa, eða verið sem leikmenn á leikskýrslu, í Bestu deildinni eða Lengjudeildinni sama ár.
23 lið skráð (17.06.)
Konur = 9 lið | Karlar = 13 lið |
Skvísudeild = 6 lið – Víkin FC – Nýliðarnir – Blái Pardusinn – 225 – K-FC – FC Guns Dömudeild = 4 lið – FC Bombur – FC SMICE – FC Firehoes – FC Lola | Polladeild = 9 lið – SÚN FC – FC Tjackur – El Baz FC – Afkvæmi Palla Gísla – JÆJA FC – Vinir Linta – FC Samba – Vigri – Eimreiðin Jarladeild = 2 lið – NB Athletics – FC Samba Lávarðadeild = 1 lið – FC Samba Öðlingadeild = 1 lið – Hómer |