Uppgjör 35. Pollamótsins
júlí 4, 2022Pollamót Samskipa – nýr samstarfssamningur
febrúar 26, 2023Nokkuð er síðan dagsetningar Pollamóts Samskipa og Þórs voru ákveðnar, en mótið verður haldið dagana 7. og 8. júlí 2023. Gera má ráð fyrir að flest í kringum mótið verði hefðbundið og með svipuðum hætti og verið hefur, fótbolti kl. 9-17 á föstudegi og laugardegi, endað á úrslitaleikjum eftir hádegi á laugardegi, frábært veður, þarf ekki að taka það fram. Við gleymum heldur ekki að hafa gaman og mun tónlist klárlega eitthvað koma við sögu.
Það er auðvitað aldrei of snemmt að huga að gistingu fyrir næsta mót enda aftur komin samkeppni við erlenda ferðamenn eftir að landinn sat nánast einn að gistirými um allt land sumrin 2020 og 2021. Málið er auðvitað að tryggja sér gistingu í tíma og njóta þess síðan að eiga áhyggjulausan vetur við æfingar og að bæta formið til að verða betri og skemmtilegri á Pollamótinu 2023 en á mótinu á undan.
Upplýsingar um verð liggja ekki fyrir, en þó má bóka að það verða engar drastískar breytingar á þátttökugjaldinu. Við reiknum með að byrja að taka við skráningum á mótið snemma í maí. Mögulega verða einhverjar reglubreytingar, en þá verða þær vel kynntar og tímanlega.
Sjáumst í Þorpinu sumarið 2023!