Leikmannamarkaður 2022 opnaður
maí 31, 2022Staðan 26. júní: 67 lið skráð
júní 13, 2022Nokkuð er síðan opnað var fyrir skráningu liða á Pollamótið 2022 og eru skráningar byrjaðar að streyma inn. Eins og í fyrra eiga allar skráningar að fara í gegnum þessa síðu, sjá hnapp efst í hægra horninu. Athugið að skrá þarf upplýsingar um liðið, ásamt nafni og kennitölu leikmanna. Ef óvíst er um þátttöku einhverra leikmanna er hægt að bæta þeim inn í viðkomandi lið síðar (sjá hnappinn „bæta við leikmanni“), en lágmark til að skrá lið til keppni í upphafi er að skrá sjö leikmenn. Val er um hvort greitt er strax við skráningu með kreditkorti eða með millifærslu. Upplýsingar koma fram þegar farið er í gegnum skráningarferlið.
Leikmannamarkaðurinn er einnig kominn af stað, sjá fyrri frétt.
Liðsgjaldið (staðfestingargjald) er það sama og áður, 10.000 krónur á lið. Að auki er þátttökugjald á hvern leikmann 7.000 krónur.
Dæmi: Ef lið er skráð með 10 leikmönnum er gjaldið 10.000 + (10 x 7.000) = 80.000 krónur.