Öll úrslit föstudags
júlí 3, 2020Að loknu Pollamóti Samskipa
júlí 6, 2020Pollamótið hefur gengið vel í gær og í dag, í einmuna blíðu og með góðu fólki, jafnt gestum, þátttakendum og sjálfboðaliðum á vegum félagsins. Pollamótsnefndin vill koma á framfæri þökkum til allra sem hafa komið á svæðið í dag og í gær fyrir að virða reglur og fara að öllu með gát, en um leið að hafa það að leiðarljósi að hafa gaman og spila skemmtilegan fótbolta í góðum félagsskap. En nú er lokahnykkurinn eftir.
Lokaskemmtun Pollamóts Samskipa 2020 verður á útisvæðinu við Þórsheimilið í kvöld. Húsið verður klárt og opnað kl. 20. Einar Ágúst og Gunnar Óla úr Skítamóral munu gera allt tryllt á milli kl. 21 og 23.
Aðgangur kostar 1.500 krónur. Munið fjöldatakmarkanir, það borgar sig að mæta snemma.