Leikreglur – uppfærðar 5. júlí 2023

Polladeildin: Karlar 28+. Þeir sem verða 28 ára á árinu teljast gjaldgengir.
Jarladeildin: Karlar 35+. Þeir sem verða 35 ára á árinu teljast gjaldgengir
Lávarðadeildin: Karlar 42+. Þeir sem verða 42ja ára á árinu teljast gjaldgengir
Öðlingadeildin: Karlar 50+. Þeir sem verða 50 ára á árinu teljast gjaldgengir.

Skvísudeildin: Konur 20+. Þær sem verða tvítugar á árinu teljast gjaldgengar.
Dömudeildin: Konur 28+. Þær sem verða 28 ára á árinu teljast gjaldgengar.
Ljónynjudeildin: Konur 35+. Þær sem verða 35 ára á árinu teljast gjaldgengar.

Í Karladeildum er ekki heimilt að nota leikmenn sem spilað hafa, eða verið sem leikmenn á leikskýrslu, í Bestu deildinni, Lengjudeildinni eða 2. deild.

Í kvennadeildum er ekki heimilt að nota leikmenn sem spilað hafa, eða verið sem leikmenn á leikskýrslu, í Bestu deildinni eða Lengjudeildinni sama ár.

1. gr. Almenn ákvæði

1.1. Allir leikir skulu fara fram skv. knattspyrnulögunum og reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, nema annars sé getið í leikreglum þessum.


2. gr.
 Leikvöllurinn

2.1. Leikið er á völlum á félagssvæði Þórs (gras‐ og gervigras). Vítateigur er 10 m frá marklínu og 10 m til beggja hliða frá hvorri markstöng. Vítamerki skal merkt fyrir miðju marki 8 m frá marklínu.


3. gr.
 Fjöldi leikmanna

3.1. Öll lið á Pollamótinu skulu skipuð sjö leikmönnum og skal einn vera markmaður.

3.2. Fjöldi skiptimanna er ótakmarkaður. Skipti á leikmönnum skulu fara fram fyrir miðri hliðarlínu vallarins og mega fara fram hvenær sem er í leiknum.


4. gr.
 Löglegir leikmenn

4.1. Leikmenn skulu í upphafi leiks sýna dómara leiksins mótsarmbönd. Hverjum leikmanni er aðeins heimilt að spila með einu liði í mótinu. Þetta á einnig við ef sami félagsskapur sendir fleiri en eitt lið undir sama heiti til keppni, viðkomandi er þá aðeins heimilt að spila með einu af þeim liðum.


5. gr.
 Leiktími

5.1. Leiktími í öllum deildum er 2×12 mínútur.


6. gr.
 Leikbrot og yfirsjónir – aukaspyrnur

6.1. Fyrir öll brot í 12. grein knattspyrnulaganna skal refsað með beinni aukaspyrnu.

6.2. Þegar leikmaður tekur aukaspyrnu skulu allir mótherjar hans vera í a.m.k. 6 m fjarlægð frá knettinum, þar til hann er kominn í leik.  Aukaspyrna  dæmd inni í vítateig andstæðings skal tekin á vítateigslínu.

6.3. Leikmanni, sem af ásetningi gerir tilraun til að ná knettinum af mótherja með því að renna sér, skal refsað með því að mótherjanum er dæmd bein aukaspyrna, hvort sem hann snertir mótherja eða ekki (rennitækling). Aukaspyrnan skal tekin frá þeim stað, þar sem brotið var framið. Ef ofangreint brot er framið í eigin vítateig, skal dæmd vítaspyrna. Þetta ákvæði á ekki við ef leikmaður rennir sér eingöngu eftir knettinum eða fyrir hann, en ekki í návígi við leikmann andstæðinga.

6.4. Markmenn mega ekki taka bolta upp með höndum eftir sendingu samherja, gildir í öllum deildum mótsins. 

6.5.  Dómari leiksins hefur tvo liti spjalda.

Grænt spjald: Leikmanni skipt af velli af dómara leiksins. Leikmaður má koma aftur inná eftir tvær mínútur. Annar leikmaður má koma strax inn í hans stað.
Rautt spjald: Leikmaður útilokaður frá frekari þátttöku í leiknum. Heimilt er að skipta inn á öðrum leikmanni eftir tvær mínútur.

7. gr. Markspyrna

7.1. Markspyrna er framkvæmd með því að kasta boltanum (markkast).

7.2. Þegar knöttur er í leik og markvörður hefur vald á honum með höndum (heldur á knettinum) í eigin vítateig er honum heimilt að taka eins mörg skref og honum hentar. Hann skal þó losa sig við knöttinn innan 6 sekúndna.


8. gr.
 Úrslit Úrslitakeppni

8.1. Að lokinni riðlakeppni hefst úrslitakeppni. Ef jafnt er í lok venjulegs leiktíma í úrslitakeppni verður háð vítaspyrnukeppni. Framkvæmdar verða þrjár vítaspyrnur á lið og ef það dugar ekki verður haldið áfram þar til úrslit fást.

9. gr. Lið mætir ekki til leiks

Mæti lið ekki til leiks í riðlakeppni hefur það fyrirgert rétti sínum til að halda áfram keppni í mótinu, hvort heldur er í útsláttarkeppni eða aukaleikjum neðstu liða. Úrslit leikja þess liðs sem um ræðir teljast ekki með í riðlinum.

10. gr. Kærufrestur

Telji lið að andstæðingur hafi gerst brotlegur við reglur um hlutgengi leikmanna er heimilt að skila inn kæru til mótsstjórnar. Kærufrestur rennur út 30 mínútum eftir að leik lýkur og skal skila inn skriflegri kæru með upplýsingum um meint brot (nafn og kennitölu ólöglegs leikmanns).

Ekki er hægt að kæra ákvarðanir dómara í leik til að fá úrslitum leiks hnekkt.